Lengi, lengi hefur verið beðið eftir þessum tímamótum og nú eru þau runnin upp, að morgni fimmtudags að íslenskum tíma.

Togaratvíburarnir Breki VE og Páll Pálsson ÍS lögðu úr höfn í dag í Rongcheng í Kína áleiðis til Íslands!

Svona byrjar frétt á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum í morgun. Eftir miklar tafir eru þessi nýjustu skip íslenska fiskiskipaflotans lögð af stað heim. Í fréttinni segir jafnframt:

Gert er ráð fyrir að skipin komi til heimahafna í Eyjum og á Vestfjörðum um miðjan maí.

Skipunum verður í fyrsta áfanga siglt suður fyrir Singapúr, þaðan til Sri Lanka, um Súesskurð til Miðjarðarhafs, um Gíbraltarsund og áfram norður til Íslands.

Siglingarleiðin er 11.300 mílur og gert ráð fyrir að ferðin taki um 50 daga.

Heimsiglingin hefst 20 mánuðum síðar en ráð var fyrir gert þegar eigendur Vinnslustöðvarinnar og Hraðfrystihússins-Gunnvarar í Hnífsdal undirrituðu smíðasamninga.

Fiskifréttir sögðu fyrst frá að komið væri ferðasnið á menn í þessari frétt.