Úttekt breska stjórnarráðsins á vegum ríkisstjórnar Theresu May á efnahagslegum áhrifum Brexit-áætlunar hennar hefur komist að þeirri niðurstöðu að til langs tíma muni lífskjör, mæld í þjóðartekjum, dragast saman um 4% í samanburði við áframhaldandi veru í Evrópusambandinu. Financial Times greinir frá .

Úttektin tók hinsvegar ekki út áhrif svokallaðrar varaáætlunar, sem felur í sér að viðskiptasamningur meginlands Bretlands við sambandið verði takmarkaður, en Norður-Írland, sem er hluti af hinu sameinaða konungdæmi, fái mun nánari samning.

3,9% lægri þjóðartekjurnar, sem úttektin segir að verði komnar fram að fullu eftir 15 ár, jafngilda um 100 milljarð pundum á ári, um 16 þúsund milljörðum króna. Lífskjaraskerðingin nemur því um 177 þúsund krónum á ári á hvert mannsbarn.