Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs Icelandair. Hann kemur til Icelandair frá Flugfélagi Íslands þar sem hann hefur stýrt markaðs- og sölumálum frá seinasta hausti. Guðmundur tekur við starfinu af Helga Má Björgvinssyni sem mun flytja til Kaupmannahafnar í sumar með fjölskyldu sinni, þar sem eiginkona hans tekur til starfa hjá Sendiráði Íslands. Helgi mun verða með starfsstöð í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Breytingarnar taka gildi 1. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

„Helgi hóf störf hjá Icelandair í Bandaríkjunum árið 1999 sem yfirmaður Icelandair Holidays og síðar sem sölustjóri fyrir Bandaríkin og Kanada.  Árið 2002 fluttist hann til London og tók við stöðu sölu- og markaðsstjóra fyrir Bretland og Írland og árið 2004 til Parísar sem svæðisstjóri fyrir Suður-Evrópu. Helgi tók við stöðu  svæðisstjóra fyrir Bretland og Írland í maí 2007 en hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair frá maí 2008.  Helgi er með BS í markaðs- og stjórnunarfræði frá University of South Carolina í Columbia og meistarapróf í viðskiptafræði frá ESCP-EAP European School of Management í París.

Guðmundur hefur starfað hjá Flugfélagi Íslands frá seinasta hausti en starfaði áður hjá Icelandair frá árinu 2004, lengst af sem forstöðumaður markaðsmála og viðskiptaþróunar til haustsins 2016. Þar áður var hann markaðsstjóri Icelandair fyrir annars vegar Mið-Evrópu og hins vegar Skandinavíu í tvo ár hvort. Hann er með B.S. og B.A. gráður í Viðskiptafræði og Alþjóðasamskiptum frá Pennsylvanía State háskólanum og diplómagráðu frá Universität Leipzig í Þýskalandi,“ segir í tilkynningunni.