Marel tilkynnti í dag um breytingu á skipulagi félagsins þar sem viðskipta- og sölusviði er skipt í tvö ný svið; þjónustu og alþjóðamarkaði.

Frá og með deginum í dag, 21. júní 2018, hefur Ulrika Lindberg verið skipuð framkvæmdastjóri þjónustu Marel og Einar Einarsson framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða. Þau taka bæði sæti í framkvæmdastjórn Marel og munu heyra undir Árna Odd Þórðarson, forstjóra Marel. Pétur Guðjónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri viðskipta- og sölusviðs, mun taka við nýju hlutverki hjá Marel.

Í tilkynningunni kemur fram að markmið skipulagsbreytinganna sé að styðja við áframhaldandi vöxt og velgengni með því að bæta þjónustu við viðskiptavini og samræma verkferla fyrirtækisins á starfsstöðvum um allan heim.

Ulrika Lindberg er 50 ára og hefur yfir 20 ára reynslu í alþjóðlegri þjónustu en hún hefur áður gegnt lykilhlutverkum í alþjóðlegum fyrirtækjum eins og Alfa Laval og Tetra Pak. Í fyrra starfi sínu sem yfirmaður alþjóðlegrar þjónustu hjá Alfa Laval byggði Ulrika með góðum árangri upp nýtt svið með það að markmiði að auka þjónustutekjur og bæta þjónustustaðla í alþjóðlegu þjónustuneti fyrirtækisins. Ulrika tekur formlega til starfa hjá Marel þann 15. september nk.

Einar Einarsson er 50 ára og hefur yfir 15 ára reynslu í forystu fyrir sölu- og þjónustustarfsemi Marel í Norður Ameríku. Einar tók við sem framkvæmdastjóri Marel Inc. í Bandaríkjunum árið 2003 og sinnti þar áður öðrum störfum hjá Marel, meðal annars sem söluhönnuður, sölustjóri, og vörustjóri. Einar tekur við sem framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða frá og með deginum í dag. Samhliða því mun hann áfram sinna hlutverki framkvæmdastjóra Marel Inc. í Bandaríkjunum þar til eftirmaður hans í því starfi tekur við.

„Marel starfar í síbreytilegu umhverfi þar sem kröfur neytenda þróast hratt. Velgengni Marel á undanförnum árum byggir á samheldnu teymi, sterkum viðskiptasamböndum og umtalsverðum fjárfestingum í nýsköpun, innviðum og aðstöðu um allan heim. Til þess að halda leiðandi stöðu okkur á markaðnum og ná metnaðarfullum vaxtarmarkmiðum verðum við að halda áfram að þróast og bæta upplifun viðskiptavina enn frekar" er haft eftir Árna Oddi Þórðarsyni í tilkynningunni.