Markaðsaðilar búast við hækkandi verðbólgu næstu misserin ef marka má niðurstöður könnunar Seðlabanka Íslands meðal markaðsaðila á skuldabréfamarkaði.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni nú vænta markaðsaðilar um 2,4% verðbólgu á fyrri helmingi þessa árs en að hún muni aukast á seinni helmingi ársins og verði 2,8% að meðaltali á fjórða ársfjórðungi. Markaðsaðilar búast því við allt að 0,3 prósentum meiri verðbólgu en í nóvember þegar síðasta könnun Seðlabankans var framkvæmd.

Nýjasta könnun Seðlabankans var framkvæmd framkvæmd 29. - 31. janúar. þar sem svör fengust frá 24 aðilum.

Verðbólguvæntingar markaðsaðila til lengri tíma eru svipaðar og og í byrjun nóvember. Þá vænta markaðsaðilar þess að verðbólga verði 2,7% eftir eitt ár en 2,6% eftir tvö ár og að meðaltali næstu fimm og tíu ár sem er 0,1-0,2 prósentum meiri verðbólga en þeir væntu í nóvember.

Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi evru gagnvart krónu verði 125 kr. eftir eitt ár og eftir tvö ár, þ.e. að gengi krónunnar verði nokkurn veginn óbreytt á næstu misserum frá því sem það var þegar könnunin var gerð. Það er svipað og var í síðustu könnun.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni nú vænta markaðsaðilar þess að meginvextir Seðlabankans verði óbreyttir í 4,25% næstu tvö ár. En í nóvember væntu þeir þess að vextir yrðu hækkaðir í 4,5% árið 2019.

Í könnuninni nú töldu 68% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt samanborið við 59% í síðustu könnun. Hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt var 18% miðað við 27% í síðustu könnun. Um 14% þátttakenda töldu taumhaldið of laust eða alltof laust líkt og í síðustu könnun.