Hrafnreyður KÓ landaði í gær fjórum hrefnum við Hafnarfjarðarhöfn og er þar með búið að veiða 41 dýr í sumar.

Mikið hefur verið af hrefnu í Faxaflóa síðustu daga og veður gott. Til samanburðar voru veiddar 29 hrefnur allt árið í fyrra. Kjötið af dýrunum fer beint til vinnslu og verður komið inn í allar verslanir fyrir verslunarmannahelgi.