Veiðar á langreyð standa nú sem hæst á vegum Hvals hf. Hvalirnir eru veiddir á hvalveiðiskipunum Hvali 8 og Hvali 9 og þegar rætt var við stjórnendur vinnslunnar í Hvalfirði voru komin 78 dýr á land.

Bræla hefur gert skipunum erfitt fyrir með veiðarnar og segir Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson, stöðvarstjóri Hvals í Hvalfirði, að sumarið einkennist af mikilli ótíð og frátöfum. Hvalveiðiskipin sækja beint út af Hvalfirði í um 150 mílur. Dimmviðri var á miðunum þegar rætt var við Gunnlaug en Hvalur 8 var kominn með einn hval sem var landað í gær. Alls höfðu því veiðst 78 hvalir það sem af er vertíðinni.

„Það bara búið að vera ótíð og það setur svip sinn á veiðarnar. Hérna eru bæði nýir og eldri starfsmenn við hvalskurðinn en handtökin lærast fljótt ef menn hafa áhuga fyrir hlutunum,“ segir Gunnlaugur.

Alls 150 manns í kringum veiðarnar

Lítils háttar bilun kom upp í Hval 9 þegar hann var á leið út fjörðinn í þar síðustu viku. Skamma stund tók að gera við bilunina sem var í dælu. Hvalveiðiskipin eru gömul en vel yfirfarin og mjög gætt að öllu viðhaldi. Um 100 manns vinna í hvalstöðinni og í alls eru um 150 manns í kringum þessar veiðar þegar allt er talið.

„Það veit enginn hve lengi við verðum að. Það ræðst af veðráttu og veiðum en hugsanlega fram í október. Kvótinn er ekkert vandamál en það vantar bara gott veður. En það hlýtur að birta upp einhvern tíma,“ segir Gunnlaugur.