Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl 2017 er 130,1 stig sem er 0,1% hækkun frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Verð á innfluttu efni hækkaði um 0,4% milli mánaða sem hefur 0,1% áhrif á vísitölu. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar lækkað um 0,6%. Vísitalan gildir í maí 2017.