Samhliða útgáfu á nýjum sýndarveruleikabúnaði frá Sony gefur tölvuleikjaframleiðandinn CCP út tvo leiki fyrir Playstation 4. Eru þetta fyrstu leikir fyrirtækisins fyrir Playstation tölvur, en þeir heita EVE: Valkyrie og EVE: Gunjack.

„Bæði EVE: Valkyrie og Gunjack eru leikir á sviði sýndarveruleika (e: virtual reality, VR),“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

„Báðir leikirnir hafa komið út fyrir Oculus Rift á PC, auk þess sem Gunjack hefur einnig komið út fyrir HTC Vive á PC og náð metsölu fyrir Samsung Gear VR búnaðinn ætlaður farsímum fyrirtækisins.“

Hér er hægt að sjá trailer fyrir EVE: Valkyre leikinn.