Fyrirtækið CCP hefur þróað nýjan leik sérstaklega fyrir Daydream sýndarveruleikakerfi Google í starfstöð CCP í Shanghai. Hann ber nafnið Gunjack 2: End of Shift. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá CCP.

Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi Google í San Fransisco í gær, þar sem að fyrirtækið tilkynnti um hinar ýmsu nýjungar, til að mynda um nýja Google snjallsíma og sýndarveruleikabúnað fyrir Daydream sýndarveruleikakerfið sitt.

Adrianne McCallister, að nýr leikur CCP, Gunjack 2: End of Shift, yrði fáanlegur fyrir Daydream. CCP hefur einnig sent frá sér alþjóðlega fréttatilkynningu um útgáfu leiksins. Þar er haft eftir Hilmari Veigari Péturssyni, forstjóra CCP, að samstarfið við Google hafi verið stórkostleg lífsreynsla.

Hér er hægt að sjá myndbönd frá blaðamannafundi Google.

Hér má sjá stiklu úr leiknum Gunjack 2.