Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur fallið frá framleiðslu tölvuleiksins Project Nova í bili. Fyrirtækið hafði uppi áform um að leyfa spilurum að prófa leikinn en fallið var frá þeim áformum. Að sögn CCP stóðst leikurinn ekki væntingar í núverandi mynd og því ákváðu framleiðendur að snúa sér aftur að teikniborðinu.

Project Nova er skotleikur sem átti að gerast í söguheimi Eve Online. Í október síðastliðnum birti CCP kynningarmyndband þar sem leikurinn var kynntur fyrir alþjóð. Í tilkynningu frá töluleikjaframleiðandanum kom fram að þróun Project Nova muni halda áfram og að fyrirtækið sé enn staðráðið í því að færa aðdáendum Eve Online hágæða skotleik sem byggi á samvinnu.