Sue Knowles markaðsstjóri Costco í Bretlandi segir að fyrirtækið hyggist ekki fara inn á íslenska tryggingarmarkaðinn. Bandaríska vöruhúsakeðjan selur auk hefðbundinna smásöluvara einnig tryggingar í Bandaríkjunum, Kanada og Bretlandi, þar sem viðskiptavinir félagsins geta keypt bílatryggingar, heimilistryggingar, sjúkratryggingar og fyrirtækjatryggingar.

„Við höfum engar áætlanir á þessum tímapunkti að bjóða meðlimum upp á tryggingar,“ segir Knowles við Vísi en hún segir jafnframt engar umræður um slíkt innan fyrirtæksins. Í mars í fyrra lýsti Samkeppniseftirlitið því yfir á fundi efnahags- og viðskiptanefndar að fákeppni ríkti á íslenska tryggingamarkaðnum.