Velta dagvöruverslana dróst saman um 3,6% í júní frá sama mánuði í fyrra. Costco er þó ekki með í mælingunni heldur einungis þær verslanir sem voru á markaði fyrir komu Costco. Í smásöluvísitölu Rannsóknarseturs verslunarinnar kemur fram að Costco vildi ekki veita upplýsingar um veltu sína þegar eftir því var leitað.

Síðastliðið ár hefur vöxtur dagvöruverslana verið nokkuð stöðugur og er samdrátturinn nú nokkuð úr takti við þá þróun. Að mati greiningaraðila er líklegt að Costco hafi klipið af markaðshlutdeild þeirra verslana sem voru fyrir og skýri það það samdráttinn. Vakti það athygli greinaraðila að verð á dagvöru lækkar hraðar í takt undanfarna tvo mánuði en sést hefur í alllangt skeið. Til að mynda var verð á dagvöru 3,9% lægra í júní síðastliðnum en í júní í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Verðið í júní lækkaði um 1,1% frá mánuðinum á undan og nær verðmælingin ekki til Costco.

Verð á raftækjum lækkaði umtalsvert

Sveiflur í veltu dagvöruverslunnar hefur löngu verið í takt við veltu áfengissölu. Sala áfengis í júní jókst um 7,8% frá sama mánuði í fyrra og er því nokkuð frábrugðin veltu á dagvöru í þetta skiptið. Verð á áfengi var óbreytt frá því í fyrra.

Hins vegar lækkaði verð á raftækjum, farsímum og tölvum umtalsvert að því er kemur fram í mælingunni. Í júní var til að mynda verð á svokölluðum „brúnum raftækjum“, sjónvörpum, hljómflutningstækjum, brauðristum og fleira, 19,6% lægra en í sama mánuði í fyrra og á farsímum lækkaði verðið á sama tímabili um 14,1%. Líklega er þarna að gæta áhrifa frá innkomu Costco.

Velta í fataverslun dregst saman

Velta fataverslunar á Íslandi heldur áfram að dragast saman og er „varla svipur hjá sjón“ miðað við sölu á fötum fyrir hrun bankanna. Það sem af er þessu ári hefur velta stærstu fataverslananna dregist saman enn frekar.

Ástæða hins skarpa samdráttar að mati RSV á þessu ári er lokun nokkurra fataverslana og hagræðing sem hefur átt sér stað í fataverslun í byrjun árs. Enn er boðuð fækkun fataverslana. Talið er að fataverslun hafi í auknum mæli færst til útlanda, bæði með auknum ferðalögum landsmanna til annarra landa og svo vegna mikillar aukningar í netverslun með föt frá útlöndum.