Vöruhús Costco í um 14 þúsund fermetra húsnæði í Kauptúni í Garðabæ, beint á móti verslun Ikea, mun opna fyrir viðskiptavini þriðjudagsmorguninn 23. maí næstkomandi klukkan 9:00 að morgni.

Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá kostar ársaðild að Costco 4.800 krónur fyrir einstaklinga en 3.800 krónur fyrir fyrirtæki.

Verslunin á Íslandi verður rekin af Costco Wholesale Iceland ehf., dótturfélagi Costco Wholesale Corporation, að því er fram kemur í frétt Vísis .