Lyfjafyrirtækið Florealis hefur ráðið þrjá nýja lykilstarfsmenn vegna aukinn umsvifa félagsins, þau Daða Hannesson, Margréti Bessadóttur og Söndru Mjöll Jónsdóttur-Buch.

„Sterkur vísindalegur bakgrunnur starfsmannanna gerir félaginu kleift að stunda öfluga vöruþróun. Við stefnum á hraðan vöxt með auknu framboði af jurtalyfjum sem byggja á vísindalegum grunni og sókn á nýja markaði á Norðurlöndunum, “ segir Kolbrún Hrafnkelsdóttir, forstjóri Florealis. „Starfsmannafjöldi Florealis hefur nær tvöfaldast undanfarið ár, en starfsmenn Florealis eru nú níu talsins.“

Daði Hannesson, fjármálastjóri, er með M.Sc. gráðu í fjármálum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og M.Acc. gráðu frá Háskóla Íslands. Daði hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum en undanfarin 13 ár hefur hann starfað við fjármálastjórn og á fjármálamarkaði við fjármögnun og breytingar á eignarhaldi fyrirtækja.

Dr. Margrét Bessadóttir, gæðastjóri, ber ábyrgð á uppbyggingu gæðakerfis félagsins. Hún er með M.Sc gráðu í lyfjafræði og doktorsgráðu í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands og hefur meðal annars stundað rannsóknir á sviði náttúruefna. Margrét hefur breiðan bakgrunn á sviði lyfjafræði bæði innan háskólasamfélagsins og lyfjaiðnaðarins. Hún hefur haldgóða þekkingu á gæðastjórnun í lyfjaiðnaði og vann meðal annars í gæðadeild lyfjafyrirtækisins Actavis.

Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, vörustjóri, er lífeindafræðingur og með doktorsgráðu í líf- og læknavísindum frá Háskóla Íslands. Hún stofnaði sprotafyrirtækið Platome og leiddi það þar til hún gekk til liðs við Florealis. Hún mun hafa yfirumsjón með því að byggja upp heildstæða og sterka vörulínu Florealis, allt frá fyrstu hugmynd til markaðar.

Florealis er íslenskt lyfjafyrirtæki sem þróar og markaðssetur jurtalyf og lækningavörur af hæstu mögulegu gæðum. Vörur fyrirtækisins eru á markaði á Íslandi og í Svíþjóð og verða fáanlegar í Danmörku, Finnlandi og Noregi á næstu árum. Höfuðstöðvar Florealis eru í Reykjavík.