Dalla Ólafsdóttur, dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands, hefur verið ráðin í lögfræðideild ASÍ.
Þetta kemur fram á vef ASÍ í dag. Dalla lauk BA prófi í stjórnmálafræði 2002, BA prófi í lögfræði 2006 og Mag.jur prófi í júní 2008. Hún hefur m.a. starfað sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu, Mörkinni lögmannsstofu og Útlendingastofnun. Dalla hefur störf hjá ASÍ þann 14. september næstkomandi.
Fyrir í lögfræðideild ASÍ er Magnús M. Norðdahl deildarstjóri.