Dalla Ólafsdóttir hefur verið ráðin sem lögfræðingur til BSRB og hóf störf þar í ágúst. Dalla er lögfræðingur frá Háskóla Íslands en hún lauk lagaprófi árið 2008. Áður hafði hún einnig lokið BA -prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Dalla hefur starfað sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu, á Mörkinni lögmannsstofu og hjá Útlendingastofnun. Þá var hún lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands frá 2009 til 2012 en var ráðin til starfa sem lögfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá fjölmiðlanefnd árið 2012.