Daniel Niddam tók við stöðu sölu- og markaðsstjóra í Evrópu hjá Sæplast Iceland í byrjun júní.

Daniel starfaði áður sem sölu- og markaðsstjóri hjá Skaganum-3x Technology í 4 ár og þar áður var hann viðskiptastjóri hjá Marel í 10 ár. Daniel er viðskiptafræðingur, uppalinn í Frakklandi en hefur búið á Íslandi í 25 ár, er kvæntur íslenskri konu og eiga þau saman þrjú börn.

Daniel tekur við starfi af Hólmari Svanssyni sem nú hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Sæplast Iceland ehf. af Daða Valdimarssyni, sem tók tók við sem framkvæmdastjóri hverfissteypudeildar RPC group, móðurfyrirtækis Sæplasts.