Davíð Ólafur Ingimarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri (CFO) Greenqloud ehf.

Fram kemur í tilkynningu að Davíð hefur frá árinu 2007 starfað hjá Landsvirkjun, nú síðast sem yfirmaður sjóðastýringar og þar áður sem yfirmaður lánamála. Þar áður starfaði Davíð sem hagfræðingur hjá Sjávarútvegtsráðuneytinu í þrjú ár.  Meðfram þessu hefur Davíð starfað sem stundakennari við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands ásamt ýmsri ráðgjafavinnu. Davíð er löggiltur verðbréfamiðlari með M.Sc. gráður í hagfræði og fjármálum fyrirtækja.