Deutsche Bank hefur tilkynnt að bankinn þurfi að að afskrifa 5,8 milljarða evra, jafnvirði 820 milljarða króna, vegna hertari reglna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í gærkvöldi.

Niðurskriftin á eignum er aðallega á fjárfestingasviði bankans, en einnig á einkabanka- og viðskiptabankasviði.

Hlutabréf bankans lækkuðu um 3% í fyrstu viðskiptum í morgun en hafa svo jafnað sig þegar liðið hefur á morguninn.