Við opnun bandaríska hlutabréfamarkaðarsins hélst úrvalsvísitalan nokkuð óbreytt. Athygli vakti þó að gengi bréfa Disney hækkuði talsvert í viðskiptum með hlutabréf árla morguns og eru hlutabréf fyrirtækisins nú metin á 105,82 dollara og hefur gengi þeirra hækkað um 1,82%, það sem af er degi.

Fyrstu sýningarhelgi Star Wars kvikmyndarinnar Rogue One rakaði fyrirtækið inn einum 290 milljónum dollara eða því sem jafngildir ríflega 33 milljörðum króna.

S&P 500 vísitalan hækkaði um 0,03 prósent og stendur nú í 2.258 stigum. Nasdaq vísitlan hækkaði sömuleiðis um 0,06% og stendur því í 5.440 stigum.