Samkvæmt fréttaveitu Bloomberg, íhugar Walt Disney co. að bjóða í Twitter. Samkvæmt þeirra heimildum hefur fyrirtækið nú þegar ráðið til sín ráðgjafa til þess að kanna málin betur.

Salesforce.com hefur einnig verið að íhuga að bjóða í samskiptamiðilinn og réði því Bank of America til þess að veita sér ráðgjöf.

Hlutabréfin í Twitter ruku nýlega upp, enda hefur orðrómurinn um hugsanlega yfirtöku stóraukist á fáeinum dögum. Hver hlutur kostar nú tæpa 23 Bandaríkjadali.

Hugsanleg yfirtaka gæti opnað á ýmiskonar dyr fyrir Disney. Fyrirtækið hefur til að mynda verið að reyna að finna nýjar og betri leiðir til þess að dreifa myndefni á netinu.