Dögg Hjaltalín, viðskiptafræðingur og blaðamaður, var í mánuðinum ráðin framkvæmdastjóri Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Hún tekur við af Birnu Guðmundsdóttur.

Dögg er að ljúka meistaranámi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands en hún hefur áður starfað m.a. sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu, bóksali og við fjárfestatengsl.