Samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við að hlutverk Íbúðarlánasjóðs við greiningar- og stefnumörkun húsnæðismála verði víkkað út. Kemur þetta fram í umsögn samtakanna við drög að frumvarpi um húsnæðismál sem liggur fyrir Alþingi. Segja samtökin engar haldbærar ástæður fyrir því að Íbúðalánasjóður sinni þessu hlutverki.

Fjölmargir aðilar gefi reglulega út greiningar á húsnæðismarkaði og sinni því hlutverki vel. Það dragi einnig úr trúverðugleika stofnunarinnar að mati SA að henni sé nú samtímis ætlað að vera ráðherra til ráðgjafar um mótun húsnæðisstefnu og stunda lánaviðskipti í samkeppni við banka og lífeyrissjóði.

Auk þess séu stofnuninni veittar alltof víðtækar heimildir til að afla ýmiss konar upplýsinga og gagna frá öðrum stofnunum sem standist vart lög. SA leggja áherslu á að haldið verði fremur áfram með þá vinnu að endurskoða starfsemi Íbúðalánasjóðs í heild sinni.

Það sé samtal sem þurfi að taka, sérstaklega varðandi lánahlutverk sjóðsins. Áður en það hafi verið gert sé engin ástæða til að sjóðnum verði veitt frekari verkefni á sviði greininga og stefnumörkunar.