Mati á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar er nú lokið með áliti Skipulagsstofnunar á áhrifum virkjunarinnar á landslag og ásýnd lands og á ferðaþjónustu og útivist segir í fréttatilkynningu Landsvirkjunar. Skipulagsstofnun ákvað í desember 2015 að endurskoða ætti mat á áhrifum Hvammsvirkjunar á ofangreinda tvo umhverfisþætti en mat á öðrum þáttum frá 2003 væri í fullu gildi.

Sú ákvörðun var kærð til Úrskurðarnefndar í umhverfis- og auðlindamálum, sem nú í febrúar 2018 hafnaði kröfum kærenda um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar. Með áliti Skipulagsstofnunar nú er því mati á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar lokið og þar með mikilvægum hluta undirbúnings við virkjunina. Hér má sjá myndband þar sem sýnt er fram á möguleg áhrif fyrirhugaðrar virkjunar.

Í matsskýrslu Landsvirkjunar kemur fram að Hvammsvirkjun yrði staðsett neðan við núverandi virkjanir á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár, u.þ.b. 15 km neðan við Búrfellsstöð sem er nú neðsta virkjun á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár. Tilgangur framkvæmdarinnar er að nýta fall og miðlað rennsli Þjórsár frá Yrjaskeri og niður fyrir Ölmóðsey með allt að 95 MW vatnsaflsvirkjun í farvegi Þjórsár við Hvamm.

Umhverfisáhrifum lýst á fullnægjandi hátt

Hvammsvirkjun er á svæði þar sem allir innviðir eru þegar til staðar og því fylgir henni minni vegagerð en nýrri virkjun á óbyggðu svæði, núverandi háspennulínur nýtast og ekki verður þörf á nýjum línum segir í tilkynningu Landsvirkjunar. Þá er ekki þörf á miðlunarlóni, heldur einungis inntakslóni með tiltölulega lítilli rýmd og óverulegri vatnsborðssveiflu þar sem rennsli Þjórsár neðan Búrfells stjórnast af miðlunum ofar á vatnasviðinu.

Skipulagsstofnun telur að matsskýrsla Landsvirkjunar uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og að umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt af hálfu Landsvirkjunar. Í álitinu segir að framkvæmdaþættir eru mjög umfangsmiklir og ljóst að ásýnd og yfirbragð á stóru svæði kemur til með að taka miklum breytingum með tilkomu virkjunarinnar.

Skipulagsstofnun telur að áhrif virkjunarinnar á landslag verði verulega neikvæð og að fyrirhugaðar framkvæmdir séu líklegar til að hafa talsverð neikvæð áhrif á útivist og ferðaþjónustu vegna þeirra breytinga sem munu verða á upplifun ferðamanna og þeirra sem stunda útivist á svæðinu.

Mikilvægi mótvægisaðgerða Landsvirkjunar

Í því sambandi undirstrikar Skipulagsstofnun mikilvægi þeirra mótvægisaðgerða sem Landsvirkjun hefur lagt til um að draga úr sjónrænum áhrifum framkvæmdanna. Jafnframt að ráðist verði í mótvægisaðgerðir vegna neikvæðra áhrifa á landslag, m.a. með útfærslu bakka og stíflugarða svo draga megi eins og kostur er úr manngerðri ásýnd lónsins auk annarra aðgerða sem fjallað er um í matsskýrslunni.

Landsvirkjun mun nú fara yfir þau atriði sem Skipulagsstofnun bendir á og taka tillit til þeirra við frekari undirbúning og mótvægisaðgerðir. Unnið er að vandaðri útlitshönnun mannvirkja, landslagshönnun, rýni á veigamiklum þáttum hönnunar og útfærslu á mótvægisaðgerðum til að lágmarka umhverfisáhrif.

Engar framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar eru áformaðar á þessu ári. Landsvirkjun er að ljúka miklu framkvæmdaskeiði á þessu ári með byggingu tveggja nýrra stöðva; 90 MW jarðvarmastöðvar á Þeistareykjum og 100 MW vatnsaflsstöðvar með stækkun Búrfells.