Hreinn hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja (EBT) nam 57,2 milljörðum króna á síðasta ári eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla upp á 22,6 milljarða. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 17,5% hagnaður í fyrra eða 46,6 milljarðar, samanborið við 17,1% hagnað árið 2011, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Árgreiðsla í veiðum hækkaði hinsvegar árið 2012 frá árinu áður, meðal annars vegna aukins fjölda smábáta sem var að veiðum.

Í Hagtíðinum Hagstofunnar kemur m.a. fram að hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2011 og 2012. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði  hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30,3% í 30%, lækkaði í fiskveiðum úr 26,4% árið 2011 í 25% af tekjum árið 2012 og lækkaði í fiskvinnslu úr 19,1% í 17,2%.

Heildareignir fyrirtækja í sjávarútvegi námu 535 milljörðum króna í lok síðasta árs. Heildarskuldir voru rúmir 429 milljarðar og eigið fé tæpir 106 milljarðar.