Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 378.300 sem er 3% aukning frá sama tíma í fyrra. Um 55% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 209.900, sem er 3% aukning frá fyrra ári að því er Hagstofan greinir frá.

Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum um 10%, 7% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 4% á Suðurlandi. Á Norðurlandi fækkaði hins vegar gistinóttum um 3% en á Austurlandi var fjöldi þeirra sambærilegur og í september 2016.

Gistinóttum Íslendinga fækkar

Um 91% gistinátta á hótelum í september var skráð á erlenda ferðamenn og fjölgaði þeim um 6% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 17%. Bandaríkjamenn gistu flestar nætur eða 117.500, síðan Þjóðverjar með 38.600 og Bretar með 32.900 meðan gistinætur Íslendinga voru 32.800.

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2016 til september 2017, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.206.000 sem er 18% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Herbergjanýting í september 2017 var 76,0%, sem er lækkun um 1,7 prósentustig frá september 2016 þegar hún var 77,7%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,3%, mælt í fjölda herbergja. Nýtingin var best á Suðurnesjum, eða um 89,5%.