Í nýjustu Hagsjá greiningardeildar Landsbankans er bent á að hækkun verðbólgunnar sem Viðskiptablaðið hefur sagt frá í morgun sé sú síðasta sem peningastefnunefnd muni hafa til skoðunar við næstu vaxtaákvörðun. Dragi mæling Hagstofunnar augljóslega úr líkum á því að nefndin lækki vexti á miðvikudaginn 7. febrúar eftir rúma viku.

Segir bankinn líkt og Íslandsbanki sagði fyrr í dag , það koma á óvart að hve mikið reiknuð húsaleiga hafi hækkað, eða um 0,9% milli mánaða. Landsbankinn hafi spáð óbreyttu gildi. Að sama skapi hafi hækkun fasteigna utan höfuðborgarsvæðisins numið 5,4% milli mánaða, sem komi í kjölfar 3,2% lækkunar milli mánaða í desember.

Greiningardeild Arion banka tekur í svipaðan streng auk þess að benda á að nú virðist sem uppsafnaður þrýstingur á matvöruverð sé að brjótast út þegar áhrif af styrkingu krónunnar og nýrri samkeppni sé farið að dvína.

Spáir Arion banki því að verðvísitalan hækki um 0,7% í næsta mánuði, þegar útsöluáhrif byrji að ganga til baka og flugfargjöld fari að hækka. Í mars nemi hækkunin 0,5% þegar útsöluáhrif gangi til baka að fullu og tómstundir og flugfargjöld hækki, og loks í apríl nemi hækkunin 0,3%, enn vegna hækkandi flugfargjalda.