Af helstu fjölmiðlafyrirtækjum landsins eru DV ehf. og Vefpressan ehf. þau sem enn hafa ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2014.

Skilafrestur á ársreikningi er eigi síðar en einum mánuði eftir samþykkt hans en þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Bar því öllum félögum að skila inn ársreikningi fyrir árið 2014 til Fyrirtækjaskrár fyrir fyrsta september á þessu ári í síðasta lagi.

Í nóvember keypti móðurfélag Vefpressunnar ráðandi hlut í DV, en félagið er í meirihlutaeigu Björns Inga Hrafnssonar og Arnars Ægissonar.