Leikfélag Reykjavíkur hyggst efla enn frekar stafrænar áherslur fyrir leikhúsgesti og hefur fengið upplýsingatæknifyrirtækið Origo til liðs við sig til þess að treysta undirstöður slíkrar vegferðar.

Meðal verkefna Origo verður að annast rekstur á grunnkerfum leikhússins og tryggja að starfsfólk leikhússins fá skjóta úrlausn á þeim tæknimálum sem upp koma hverju sinni.

,,Nútíma leikhús reiðir sig í auknum mæli á stafræna tækni, hvort sem það er vegna sviðsmyndar, í miðasölu eða annarri þjónustu. Leikhús er ennfremur í samkeppni við ýmis konar afþreyingu og því skiptir máli að áhorfendur okkar geti upplifað nýja og spennandi hluti í bland við hefðbundin leikhúsverk sem eiga ekki síður erindi til fólks nú á tímum. Þess vegna þarf tæknin að vera hnökralaus og standast ýtrustu öryggiskröfur," segir Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins.

,,Okkur hjá Origo þykir ákaflega spennandi að hefja þessa vegferð með Borgarleikhúsinu enda örugglega einn sá skemmtilegasti vinnustaður sem völ er á. Sköpun, gleði, drama, dans og söngur alla daga. Við munum leggja okkur öll fram um að tryggja að upplýsingatæknireksturinn sé með þeim hætti að það einfaldi og auðveldi störf starfsmanna leikhússins," Segir Linda Waage framkvæmdastjóri Rekstrarþjónustu Origo.