Vinna við gerð Héðinsfjarðarganga gekk vel í síðustu viku (viku 03). Á nú einungis eftir að sprengja 630 metra, af heildarlengd ganganna, en búið að sprengja 9.94 metra eða 94%.

Frá Héðinsfirði til Ólafsfjarðar voru sprengdir 45 metrar í síðustu viku og jafnframt unnið við endanlegar bergstyrkingar. Heildarlengd ganga þeim megin frá er orðin 1.815 metrar.

Frá Ólafsfirði til Héðinsfjarðar voru sprengdir 63 metrar og er heildarlengd ganga þeim megin frá 4.485 metrar.