Fyrrum formaður Samfylkingar og þingmaður flokksins til margra ára, Össur Skarphéðinsson hefur skrifað það sem hann kallar minningargrein um stjórnmálaflokkinn Björt framtíð á facebook síðu sína.

Tilefnið er, eins og Viðskiptablaðið sagði frá í morgun, að flokkurinn hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram, hvorki sjálfur né í samfloti með öðrum, í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor.

Segir Össur sögu flokksins einhverja mestu sorgarsögu síðari tíma stjórnmála, en flokkurinn sprengdi síðasta ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn. Þurrkaðist hann út af þingi í kjölfarið og Viðreisn sem verið hafði náinn samstarfsflokkur enda báðir á miðju stjórnmálanna missti helming síns fylgis.

Segir Össur að eftir flokkinn liggi ekkert og hans verði ekki minnst fyrir neitt, nema hugsanlega þingmál um að breyta klukkunni og fyrir að setja hraðamet í því að springa á limminu í ríkisstjórn.

Segir hann forystu flokksins hafa verið gjörsneydda málefnum og einkum barist fyrir áskrift forystumanna að góðum launum.

Segir hann núverandi formann flokksins, Björtu Ólafsdóttur hafa lýst opinberlega yfir löngu liðnu andláti flokksins með tilkynningunni í morgun, en hún sé þekktust fyrir að hafa brotið siðareglur Alþingis með myndatöku en svarað gagnrýninni með ásökunum um að um viðbrögð feðraveldisins væri að ræða.

Hér fer færslan í heild sinni:

Björt framtíð - im memoriam

Saga Bjartrar framtíðar er einhver mesta sorgarsaga síðari tíma stjórnmála. Eftir flokkinn liggur ekkert. Hans verður ekki minnst fyrir neitt nema hugsanlega þingmál um að breyta klukkunni og fyrir að springa á limminu í ríkisstjórn á nýju hraðameti í stjórnmálasögunni. Í forystu hans voru þó efnisfólk í upphafi. Guðmundur Steingrímsson var eitthvert mesta efni sem kom fram í pólitíkinni á síðustu árum. Jón Gnarr gaf flokknum í vöggugjöf aðild að sterkum meirihluta í borginni. En Björt framtíð var hins vegar gjörsneydd málefnum. Síðari tíma forysta hennar virtist einkum berjast fyrir áskrift forystumanna sinna að góðum launum fyrir þægilega innivinnu. Svo fattaði pöpullinn feikið , fylgið hvarf, og taugakerfið brast einsog frægt varð. Flokkurinn logaði skjótt stafna á milli í illvígum átökum. Jón Gnarr , Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall og Heiða Kristín voru hrakin í burtu. Eftir sat „ accidental leader “ sem hvarf einsog íkorni inn í myrkviði ráðuneytis og hefur ekki spurst til síðan. Og svo auðvitað Björt Ólafsdóttir sem í morgun lýsti opinberlega löngu liðnu andláti flokksins. Sjálf tók hún sér ógleymanlegan sess í þingsögunni þegar hún notaði sali Alþingis til að láta taka af sér tískumyndir til að auglýsa prýðilega kjólaframleiðslu vinkonu sinnar. Þegar bent var á að það væri brot á siðareglum Alþingis trúði hún Facebook fyrir að svona gagnrýni væri dæmigerð fyrir viðbrögð feðraveldisins. Færslan olli uppnámi innan flokks og utan og var fjarlægð eftir hádegi, og nú er Björt framtíð búin að fjarlægja sjálfa sig af sviðinu. – Lítið var en lokið er.