Reykjanesbær stendur enn í viðræðum við kröfuhafa sína um niðurfellingu á hluta skulda bæjarins. Reykjaneshöfn hefur óskað eftir fjármunum til Helguvíkurhafnar úr Hafnarbótasjóði auk þess sem viðræður hafa staðið yfir milli bæjarins og stjórnvalda um sértæk framlög til hafnarinnar. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir helsta umræðuefnið í viðræðunum við kröfuhafa Reykjaneshafnar snúa að því með hvaða hætti ríkið geti komið að uppbyggingu Helguvíkurhafnar.

Guðbrandur Einarsson, fulltrúi Beinnar leiðar í bæjarráði Reykjanesbæjar, segir viðræður við ríkisvaldið vegna fjárfestinga í Helguvík hafa gengið mjög treglega. Hann segir jafnframt að vilji kröfuhafa í samningaviðræðunum mótist af framtíðarmöguleikum hafnarinnar til uppbyggingar. „Þeir hanga náttúrulega á því að það sé verið að koma með fjármagn inn í höfnina,“ segir hann. Hann bætir við að svo virðist sem allar hafnir á Íslandi fái framlög nema Reykjaneshöfn.

Spurður um hvort viðræður við kröfuhafa velti á þessu atriði segir Guðbrandur að svo sé, því annars verði niðurfellingarþörfin meiri. „Ég sé ekki að kröfuhafar séu tilbúnir til þess.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .