Hagnaður Eglu fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2007 er 23.076 milljónir króna en fyrir sama tímabil í fyrra var tap félagsins 899 milljónir króna. Gangvirðisbreyting hlutabréfa var jákvæð um 22.534 milljónir króna í samanburði
við neikvæða gangvirðisbreyting hlutabréfa á fyrri hluta ársins 2006 uppá 431 milljónir króna segir í frétt til Kauphallarinnar.

Árshlutareikningur Eglu hf. fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2007 hefur verið staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins. Árshlutareikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa könnunaráritun endurskoðanda félagsins.

Egla hf. birtir nú í fyrsta skipti reikningsskil sín í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum í árshlutareikningi verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur.

Heildareignir Eglu hf. voru þann 30. júní 2007 bókfærðar á 134.388 milljónir króna. Eigið fé félagsins á sama tíma nam 75.700 milljónum króna og hefur vaxið um 23.076 milljónir króna eða sem nemur hagnaði félagsins frá áramótum


Félagið á eignarhluti í traustum fyrirtækjum og er búist við að þau skili Eglu góðri ávöxtun í framtíðinni segir í tilkynningunni.