Hjónin Freyr Friðriksson og Elfa Hrönn Valdimarsdóttir, eigendur KAPP ehf., hafa keypt rekstur Stáltech ehf, sem hefur þjónustað fiskvinnslur, kjötvinnslur og aðrar greinar matvælaiðnaðarins frá stofnun árið 2003. Stáltech hefur jafnframt framleitt færibönd, kæli og uppþýðingarkör fyrir sjávarútveginn ásamt því að sinna sölu og þjónustu á fiskvinnsluvélum frá Pisces.

,,Með þessum kaupum erum við að styrkja KAPP ehf sem enn öflugra þjónustu og framleiðslufyrirtæki á sviði véla-, kæli- og renniverkstæðis. Við sjáum mikil tækifæri í að auka enn frekar framleiðslu og þjónustu við sjávarútveginn og matvælaiðnaðinn í heild sinni. Við getum nú boðið upp á fleirri lausnir fyrir okkar viðskiptavini,” segir Freyr Friðriksson, framkvæmdastjóri KAPP.

Fyrirtæki þeirra hjóna framleiðir OPTIM-ICE ísþykknivélarnar sem eru mjög vinsælar á alþjóðamarkaði að því er segir í fréttatilkynningu fyrirtækisins. OPTIM-ICE er þar sögð með bestu kæliaðferðum sem fyrirfinnast í dag og að ísþykknivélarnar hafi einstaklega hraða kælingu og eiginleika sem fari mjög vel með hráefnið.

Allir starfsmenn Stáltech og fyrrum eigendur fyrirtækisins, þeir Eiður Sveinsson og Páll Ingi Kristjónsson, halda áfram að starfa hjá KAPP í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Miðhrauni 2 í Garðabæ. KAPP hefur nýverið stækkað framleiðslusal fyrirtækisns um 300 fermetra og segir Freyr að sú stækkun komi sér vel undir starfssemi Stáltech.