Hagnaður Eimskip nam um 4,6 milljónum evra eða um 575 milljónum íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 612 milljónum króna eða um 4,9 milljónum evra á sama tímabili í fyrra.

Tekjur námu 172,6 milljónum evra, hækkuðu um 1,1% frá Q2 2017. Magn í áætlunarsiglingum jókst um 2,9% drifið af 6.3% vexti í gámaskipakerfinu. Magn í flutningsmiðlun jókst um 10,9% drifið af 36.6% vexti í þurrvöruflutningum.

EBITDA nam 14,9 milljónum evra, dróst saman um 1,8 milljónir evra frá Q2 2017. Eiginfjárhlutfall var 49,7% og nettóskuldir námu 128,8 milljónum evra í lok júní. Afkomuspá fyrir árið 2018 er óbreytt á bilinu 57 til 63 milljónir evra en samkvæmt fyrirliggjandi forsendum liggur afkoman frá neðri mörkum að miðgildi bilsins.

„Eftir krefjandi fyrsta ársfjórðung ársins 2018, var afkoma annars ársfjórðungs meira í takt við okkar væntingar. Félagið fjárfesti í nýju vikulegu siglingakerfi með því að bæta tveimur skipum við og er því að fara í gegnum umbreytingarferli. Það mun taka tíma að byggja upp magn fyrir vikulega þjónustu en við erum bjartsýn á áætlanir okkar og útlitið varðandi bókanir er jákvætt, fyrir inn- og útflutning til og frá Íslandi, í Trans-Atlantic og Short-Sea. Á öðrum ársfjórðungi hófust flutningar fyrir nýja verksmiðju PCC á Húsavík sem eykur flutningsmagn á gráu línunni sem sinnir strandsiglingum við Ísland. Í ágúst tryggði félagið aukið magn frá Bretlandi í gegnum nýjan viðskiptavin sem mun m.a. flæða inn á gráu línuna. Flutningsmagn í Trans-Atlantic á grænu línunni á milli Norður Ameríku og Norður Evrópu/Skandinavíu heldur áfram að aukast og nam vöxtur í flutningsmagni um 44% á öðrum ársfjórðungi.

Magn á öðrum ársfjórðungi ársins í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst í takt við okkar væntingar eða um 2,9% samanborið við sama tímabil í fyrra. Magnaukningin er drifin áfram af 6,3% vexti í gámaskipakerfinu tengt Trans-Atlantic flutningum og Íslandi og Færeyjum, þrátt fyrir samdrátt í innflutningi á bílum til Íslands. Tekjur af áætlunarsiglingum námu 115,9 milljónum evra og drógust saman um 1,4% samanborið við sama tímabil í fyrra, sem skýrist að mestu vegna gengishreyfinga, samdráttar í tekjum í Noregi og lægri tekjum af innfluttum bílum til Íslands. EBITDA af áætlunarsiglingum nam 10,2 milljónum evra samanborið við 11,8 milljónir evra í fyrra.

Vöxtur í magni í flutningsmiðlun á öðrum ársfjórðungi nam 10,9%, drifinn áfram af 36,6% vexti í þurrvöru en tekjur af flutningsmiðlun námu 56,8 milljónum evra og jukust um 6,6% samanborið við sama tímabil árið áður. EBITDA í flutningsmiðlun nam 4,7 milljónum evra samanborið við 4,9 milljónir árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld á öðrum ársfjórðungi námu 0,9 milljónum evra samanborið við 2,8 milljónir evra árið áður. Það eru stöðugar áskoranir í sveiflum á alþjóðlegum flutningsverðum, í gjaldmiðlum og í olíuverði.

Hagnaður tímabilsins var svipaður og í fyrra og nam 4,6 milljónum evra samanborið við 4,9 milljónir í fyrra.

Til að koma til móts við þarfir markaðarins hóf félagið í ágúst siglingar á nýjar hafnir í Póllandi og í Litháen á meðan makríl vertíð á Íslandi stendur yfir. Nýsmíðar félagsins á tveimur sérhæfðum gámaskipum, sem hvort um sig er 2,150 gámaeiningar, ganga samkvæmt áætlun og búist er við að þau verði afhent um mitt næsta ár. Fyrirhugað samstarf félagsins og Royal Arctic Line er til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu. Eimskip keypti í ágúst 51% hlut í rekstrarfélaginu Tromsö Terminalen í Noregi sem starfrækir 7,000 tonna frystigeymslu í Tromsö sem þjónustar sjávarútveginn. Félagið hyggur á að byggja stærri frystigeymslu í Tromsö. Á fyrri helmingi ársins útvíkkaði félagið þjónustunet sitt með því að opna skrifstofur í Kaupmannahöfn og á Las Palmas.

Búist er við að magn og tekjur frá nýjum viðskiptavinum í áætlunarsiglingum auki arðsemi félagsins það sem eftir lifir árs. Þar að auki vinnur félagið að fjölda umbótaverkefna með það að markmiði að bæta rekstur og arðsemi félagsins, t.d. skil á leiguskipi í Noregi í júlí, draga úr rekstrarkostnaði tengdum gámaflota félagsins, lækkun á launakostnaði, aðlaganir á siglingakerfinu, aukin samlegð á milli skrifstofa félagsins, ásamt öðrum verkefnum.

Afkomuspá félagsins fyrir árið 2018 er óbreytt eða EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra en samkvæmt fyrirliggjandi forsendum liggur afkoman frá neðri mörkum til miðgildis bilsins,“ segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip.