Eimskip hefur gengið frá kaupum á 100% hlut í bandaríska flutningsmiðlunarfyrirtækinu Pacific Tramper Services, Inc. (PTI) frá og með 1. nóvember næstkomandi að því er segir í tilkynningu fyrirtækisins.

Þar kemur fram að PTI hefur verið leiðandi í flutningum á frosnum fiski frá Alaska í yfir 20 ár. Fyrirtækið er með aðalskrifstofu í Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna og umfangsmikla starfsemi í Dutch Harbor í Alaska, tengda rekstri á frystigeymslu og hafnaraðstöðu. Ársvelta félagsins er um fimm til sex milljónir USD á ári eða um 340 til 408 milljónir íslenskra króna. EBITDA er í kringum 350 ? 400 þúsund USD eða 24 til 27 milljónir króna. Kaupin eru fjármögnuð með eigin fé.

Rekstur PTI mun heyra undir Ameríkusvið Eimskips sem Reynir Gíslason stýrir. Alan Peterson, fyrrverandi eigandi PTI Inc., mun gegna stöðu forstjóra PTI, en hann hefur áratuga reynslu í flutningum og umsýslu á frystum sjávarafurðum.í Alaska.

PTI hefur undanfarið flutt um 35.000 tonna á ári af fiski frá Alaska til austurlanda. Áætlanir næsta árs gera ráð fyrir flutningum uppá um 45.000 tonn. Heildarflutningar á Alaska svæðinu nema um 2,5 milljónum tonna á ári.

Kaup Eimskips á PTI munu styrkja stöðu Eimskips í Alaska verulega, m.a. með möguleikum á frekari þróun á frystigeymsluþjónustu í Dutch Harbor og þróun á frystiskipaþjónustu til Evrópu og Asíu. Þá opnast möguleikinn á því að tengja Alaska og norðvesturhluta Bandaríkjanna við alþjóðlegt flutnings- og frystigeymslunet Eimskips.

Um Eimskip

Eimskip býður viðskiptavinum heildarlausnir í flutningum, þ.m.t. skipaflutninga, flugflutninga og landflutninga, með sérstakri áherslu á hitastýrða flutninga og geymslu, Eimskip rekur 104 starfsstöðvar í Evrópu, N-Ameríku, S-Ameríku og Asíu. Fyrirtækið er með 40-50 skip í rekstri, 640 flutningabíla og yfir 40 frystigeymslur.