Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq lækkaði um 0,08% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á markaði var 6,5 milljarðir, en velta á hlutabréfamarkaði var 1.368 milljónir og velta á skuldabréfamarkaði nam 5.141 milljónum.

Gengi bréfa Eimskipfélags Íslands lækkaði mest eða um 1,04% í 100,46 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa HB Granda um 0,54 í litlum viðskiptum og gengi bréfa N1 um 0,5% í 59,3 milljón króna viðskiptum.

Hins vegar hækkaði gengi bréfa TM mest eða u m 0,9 prósent í litlum viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair um 0,42% í 393,3 milljón króna viðskiptum.