Fjárfestingafélag sem er í eigu Einars Arnars Ólafssonar, sem er hvað þekktastur fyrir að vera fyrrum forstjóri Skeljungs, eignast 2% hlut í tryggingarfélaginu TM. Þetta kemur fram í DV .

Miðað við gengi bréfa TM í lok viðskipta í gær þá er markaðsvirði eignahlutans 365 milljónir. Fjárfestingarfélag Einars, Einir ehf. er því nú fjórtándi stærsti hluthafinn í TM.