Einar Páll Tómasson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunardeildar Icelandair og tekur til starfa um næstu mánaðamót.  Einar Páll hefur starfað fyrir Icelandair erlendis um árabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Hann hóf störf hjá félaginu árið 2005 sem sölustjóri í Hollandi.  Árið 2006 tók hann við sem svæðisstjóri fyrir mið-Evrópu og árið 2008 sem svæðisstjóri Icelandair fyrir meginland Evrópu.  Á árunum 1999 til 2005 var Einar Páll markaðsstjóri MasterCard á Íslandi og var auk þess fulltrúi í “Branding & Sponsorhsip Work Group” hjá MasterCard í Evrópu.  Einar Páll er með viðskiptafræðigráðu frá Norwegian School of Management með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði og stjórnun.  Einar Páll er giftur og með 3 börn.