Lauf forks á nú í viðræðum við alþjóðleg hjólafyrirtæki í fremstu röð um samstarf að þróun nýrrar afturfjöðrunarlausnar fyrir reiðhjól. Lauf sótti nýlega um einkaleyfi fyrir nýstárlegri stillanlegri fjöðrun þar sem léttar og sveigjanlegar blaðfjaðrir eru tengdar sætispósti reiðhjólsins. Uppfinning Lauf forks hefur þegar vakið athygli í hjólaheiminum, en á dögunum var fjallað um einkaleyfisumsóknina á bikerumor.com, sem er einn virtasti og víðlesnasti vefmiðillinn í bransanum, að sögn Benedikts Skúlasonar framkvæmdastjóra félagsins.

Undirbúningur að framleiðslu afturfjöðrunarinnar er hafinn og áætlanir gera ráð fyrir að varan verði markaðssett á síðari hluta næsta árs. Hún bætist þá við vöruúrval fyrirtækisins, sem telur nú þrjár tegundir af demparagöfflum og reiðhjólið True Grit. Hjólið kom á markað nú í vetur og söluaðilum þess fjölgar ört, einkum í Bandaríkjunum.

Lauf forks var stofnað árið 2011. Eftir þriggja ára þróunarvinnu fór fyrsti gaffallinn í sölu. Síðan þá hefur fyrirtækið haldið áfram að þróa sína gaffla og komið reiðhjólinu True Grit á markað, eins og áður sagði.