

Um fjórðungur aðspurðra í nýrri könnun MMR segja að of mikill fjöldi flóttafólks fái hæli hér á landi, meðan 45% segja fjöldann hæfilegan.
30,9% telja svo að fjöldi þeirra sem fái hér hæli sé of lítill, en niðurstöðurnar eru nokkuð mismunandi eftir bæði kynjum, aldri, menntun og stjórnmálaskoðunum.
Töldu 28% karla fjölda flóttamanna sem fái hér hæli vera of mikinn meðan sama átti við um 20% kvenna, en jafnframt voru konur töluvert líklegri en karlar til að telja fjöldann hæfilegan, eða 50% á móti 40% karla.
Yngra fólk taldi líklegra en eldri að of fáum flóttamönnum væri veitt hæli eða 37% og 36% þeirra sem voru á aldursbilinu 18-29 ára annars vegar og 30-49 ára hins vegar.
Aldurshópurinn 50-67 ára var líklegastur til að telja að of margir fengu hér hæli eða 35% meðan þeir sem voru 68 ára og eldri voru líklegastir til að telja fjöldann hæfilegan eða um 54% þeirra.
Um 50% þeirra sem höfðu háskólapróf töldu að of fáir flóttamenn fengu hæli hér á landi en 9% þeirra töldu þá vera of marga.
Um 26% þeirra sem hafa framhaldsskólapróf og 15% með einungis grunnskólapróf töldu of fáa flóttamenn fá hér hæli, meðan 27% með framhaldsskólapróf og 38% með grunnskólapróf töldu þá of marga.
Ef málefnið er skoðað eftir stjórnmálaskoðunum voru stuðningsmenn Pírata líklegastir til að finnast of fáir flóttamenn fá hér hæli eða 57% þeirra meðan 12% þeirra fannst of margir fá hæli.
Stuðningsmenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins voru ólíklegastir til að þykja að of margir fái hæli hér á landi eða 7% og 8% meðan hlutfall þeirra sem töldu hlutfallið hæfilegt vera 57% og 58%.
Sama hlutfall stuðningsmanna Viðreisnar og Bjartrar framtíðar fannst sem of margir fengu hér hæli, eða 20%, meðan Vinstri grænir voru ólíklegastir til að finnast það eða einungis 8% þeirra.