Neytendastofu kannaði í byrjun árs vefsíður 109 fasteignasala ásamt því að kanna sölustaði þeirra sem staðsettar eru á Höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða Neytendastofu var sú að einungis fasteignasalan Nýtt Heimili uppfyllti öll þau skilyrði sem gerð eru til upplýsinga um þjónustuna.

Í könnun Neytendastofu var skoðað hvort verð á öllum þjónustuþáttum væri sýnilegt á staðnum og á vefsíðum fyrirtækjanna þar sem skylt er að gefa upp verð bæði þar sem þjónusta er kynnt og seld auk þess sem sérstaklega þarf að taka fram ef annar kostnaður bætist við verðið. Auk þess var kannað hvort allar upplýsingar um fasteignasölurnar, svo sem heimilisfang, kennitala, netfang, vsk.númer, hlutafélagaskrá og starfsleyfi kæmu fram á vefsíðu. Fasteignasölum ber skylda að vera með lögbundið starfsleyfi frá Innanríkisráðuneytinu.

Af þeim 109 vefsíðum sem kannaðar voru var verð á öllum þjónustuþáttum einungis tilgreint á fjórum síðum en fimm til viðbótar höfðu einhverjar upplýsingar um verð. Þá voru einungis þrjár fasteignasölurnar með gjaldskrá sýnilega fyrir alla þjónustuþætti á sölustað og þrjár til viðbótar höfðu hluta af upplýsingunum sýnilegar.