Starfsfólki HB Granda á Akranesi sem sagt var upp störfum í tengslum við breytingar á bolfiskvinnslu félagsins var gefinn kostur á að sækja um áframhaldandi vinnu á öðrum starfstöðvum á Akranesi og í Reykjavík. Frestur til þessa rann út 30. júní síðastliðinn. Í dag verður 57 starfsmönnum boðið nýtt starf á öðrum starfsstöðvum HB Granda eða dótturfélögum að því er kemur fram í frétt á vef HB Granda.

Einnig kemur fram að svo stöddu verði ekki hægt að verða við óskum 14 starfsmanna af þeim 92 sem sagt var upp. „Allir sem tóku fram að Norðurgarður í Reykjavík kæmi til greina sem vinnustaður fá boð um vinnu þar, alls 29 starfsmenn. 28 starfsmenn fá boð um störf á Akranesi, hjá dótturfélögum HB Granda, Norðanfiski og Vigni G. Jónssyni en einnig við sameiginlega þjónustu, þ.e. umsjón tækja, lóða og fasteigna félagsins. 21 starfsmaður hyggst eða hefur þegar farið til annarra vinnuveitanda eða í nám. Félagið hefur enn ekki fundið lausnir fyrir 14 starfsmenn sem hafa vinnu til 1. september næstkomandi en mun áfram aðstoða þá eftir megni við atvinnuleit innan félagsins sem utan,“ kemur einnig fram í frétt HB Granda