Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ætlar að fenginni tillögu frá ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara ákveðið að úthluta ekki viðbótartollkvótum fyrir innflutning á buffala-, geita- og ærmjólkurostum né heldur lífrænum kjúklingi. Ástæðan er sú að sérstakir tollkvótar fyrir 219 tonnum af osti og 259 tonnum af alifuglakjöti er árlega úthlutað og handhöfum þeirra er í sjálfsvald sett hvaða osta og alifuglakjöt þeir ákveði að flytja inn.

Fram kemur á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis að þann 3. febrúar síðastliðinn barst ráðuneytinu erindi þar sem farið var fram á opinn tollkvóta án gjalda fyrir innflutning á buffala-, geita- og ærmjólkurostum. Í erindinu kemur fram að forsenda beiðninnar sé sú að framleiðsla nefndra afurða sé ýmist engin eða hverfandi og anni þar af leiðandi ekki eftirspurn. Þá hafi ráðuneytinu líka borist sambærileg beiðni um opinn tollkvóta vegna innflutnings á lífrænum kjúklingi.

100 tonna tollkvóta úthlutað í desember

Ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki þyki ástæða til að úthluta opnum tollkvóta fyrir umræddar vörur. Ástæða þess sé að í desember í fyrra var úthlutað 100 tonna tollkvóta fyrir osta, þar af 20 tonn af sérostum með landfræðilegum merkingum. Þá er árlega, í júní, úthlutað 119 tonna WTO tollkvóta fyrir osta. Innflytjendur sem fá úthlutað tollkvóta ákveða sjálfir hvers konar ostar fluttir eru inn. Hafa þeir þannig frjálsar hendur um hvernig þeir ráðstafa tollkvóta sínum og gætu til dæmis flutt inn ofangreindar ostategundir ef vilji stæði til.

Í vef ráðuneytisins segir orðrétt:

„Með hliðsjón af framangreindu þykir því ekki vera ástæða til þess að úthluta viðbótartollkvótum fyrir buffala-, geita- og ærmjólkurosta. Sömu rök gilda varðandi úthlutun tollkvóta vegna kjúklings, en árlega er úthlutað 259 tonna tollkvóta fyrir kjöt af alifuglum. Þá er rétt að geta þess að ráðherra hefur ekki heimild til að fella niður tolla á ákveðnar vörur. Í lögum er því lýst hvernig tollar skulu ákvarðaðir fyrir vörur sem fluttar eru inn innan tollkvóta.“

Þessu til viðbótar segir á vef ráðuneytisins að á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn þriðjudag upplýsti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að til stæði að endurskoða löggjöf um úthlutun tollkvóta í ljósi þeirrar reynslu sem nú liggur fyrir um framkvæmd löggjafarinnar og þeirra álitaefna sem upp hafa komið. Í þessu sambandi verður m.a. skoðað hvort tilefni sé til að sett verði hámark á markaðsráðandi aðila við úthlutun tollkvóta. Íslensk stjórnvöld hafa um alllangt skeið átt í tvíhliða viðræðum við ESB um aukin gagnkvæm viðskipti með landbúnaðarvörur og standa vonir til þess að þeim viðræðum ljúki á næstu mánuðum.