Björgólfur Jóhannsson, fráfarandi formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði í dag á ársfundi atvinnulífsins benti í dag á að það blasi við að finna leiðir til að stytta bið sjúklinga eftir læknisþjónustu.

„Það er því makalaust að hugmyndafræðileg afstaða skuli koma í veg fyrir að gerðir verði samningar við einkareknar heilbrigðisstofnanir, sem geta hjálpað til við að stytta biðlista eftir ýmsum aðgerðum. Þá virðist heilbrigðisráðherra ekki hafa hag sjúklinga í fyrirrúmi þegar hann kannar ekki hvort unnt sé að gefa þeim, sem eiga rétt á aðgerðum erlendis, kost á að fá þær hér á landi en með því mætti stytta biðlistana og auka lífsgæði sjúklinganna. Í nágrannalöndunum tíðkast að leita hagkvæmustu leiða til að veita þjónustuna. Þar er viðurkennt að hagkvæmur rekstur er undirstaða velferðarinnar óháð því hver veitir þjónustuna,“ sagði Björgólfur.

Hann tók jafnframt fram að Landspítalinn hafi fengið milljarða króna í auknar fjárveitingar á síðustu árum. Hann segir að ríkið og viðsemjendur þess hafa ákveðið að langstærstur hluti þessa fjár skuli renna í vasa starfsfólks en ekki til að bæta þjónustu við sjúklinga.