Vendum
Vendum
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Elín Hirst fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2 og Ríkisútvarpinu íhugar framboð í prófkjöri Sjálfstæðisflokkins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Vitað er að Elín hefur hitt forystumenn flokksins vegna þessa.

Fari Elín í framboð er ekki langt að sækja einhvern öflugasta kosningamann í landinu. Sá maður er nefnilega eiginmaður hennar, Friðrik Friðriksson , sem meðal annars var kosningastjóri Davíðs Oddssonar þegar Davíð sigraði Þorstein Pálsson í formannskosningu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins vorið 1991.