„Ég ber Blue Lagoon rich nourishing cream sem er algjör dásemd á mig kvölds og morgna og eftir ræktina. Ég skal segja þér það að þetta dagkrem er undur svo vægt sé til orða tekið. Það þéttir húðina og gerir hana ferska og slétta og það er engin lygi. Nú þegar ég er að nálgast fimmtugsaldurinn þá finn ég mun," segir Ellý Ármanns ritstjóri.

„Þá nota ég líka dagkrem frá L´Oréal en það heitir BB cream og stendur fyrir Bare skin beautifier. Þetta dagkrem er snilld að því leyti að það samlagast húðlitnum. Síðan er ég kafloðin fyrir ofan augun með þykkar augabrýr og er með svört augnahár þannig að ég þarf lítið að gera við augnsvæðið. Eins mikið og ég þoldi það ekki þegar ég var yngri þá kann ég að meta það í dag,“ segir Ellý.

Nánar er rætt við Ellý og fleiri konur um allt sem við kemur snyrtivörum í nýjasta tölublaði Eftir vinnu sem er komið út. Fylgist með Eftir vinnu hér á Facebook.