Hafnarbúðirnar við Geirsgötu hafa tekið miklum breytingum eftir að Mýrin og MAR opnuðu. Rannveig Sigurðardóttir, eigandi Mýrarinnar, og Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri MAR/Eldingar, segja reksturinn hafa verið mun betur af stað en þeim óraði fyrir. Hinsvegar sé töluvert ólíkara að reka verslun í miðbænum í samanburði við Kringluna en verslunin Mýrin er einnig til húsa þar.

Viðskiptablaðið leit við í Hafnarbúðunum þar sem við hittum einnig Svein Þorra Þorvaldsson og Jón Inga Hrafnsson en þeir sjá um veitingastaðinn MAR.