Fréttablaðið slær því upp sem forsíðufrétt í dag að Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans vilji að tvö dómsmál gegn honum verði tekin upp að nýju á þeim forsendum að hlutabréfaeign þeirra í bönkunum sem féllu hafi gert þá vanhæfa.

Sigurjón var dæmdur í október 2015 af Hæstarétti í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun fyrir hið svokallaða Ímon mál.

Að auki var hann svo dæmdur í 18 mánaða fangelsi til viðbótar fyrir sömu sakargiftir í byrjun febrúar á síðasta ári. Lögmaður Sigurjón, Sigurður G. Guðjónsson, segist í samtali við blaðið hafa sent erindi til endurupptökunefndar í september.

Byggja á fréttum um hlutabréfaeign

„Við byggjum nú bara fyrst og fremst á þeim fréttum sem hafa komið um hlutabréfaeign dómara í blöðunum,“ segir Sigurður. „Svo hefur verið að koma í ljós að þeir hafa verið að staðfesta að þeir hafi tapað fjármunum í bankahruninu, sumir dómarar.“

Björn L. Bergsson formaður nefndarinnar segist að ekki hafi neinar beiðnir um endurupptöku á grundvelli vanhæfni dómara borist eftir að fréttir af fjárhagslegum hagsmunum hæstaréttardómara voru sagðar í desember.

Sigurður segist hins vegar hafa verið að bæta við hana síðan hann sendi hana inn fyrst í september. „Síðan hef ég verið að bæta við hana eftir því sem maður hefur fengið meira af gögnum," segir Sigurður.

„En það vill svo til að nefndin er eiginlega óstarfhæf af því að það reyndust einhverjir nefndarmenn vanhæfir og Alþingi þarf að kjósa nýja.“